Um Lyfjaver

Um Lyfjaver

Lyfjaver var stofnað 1998 af þeim Aðalsteini Steinþórssyni, Bessa Gíslasyni og Magnúsi Steinþórssyni. Lyfjaver er brautryðjandi tölvustýrðrar lyfjaskömmtunar (vélskömmtunar) en skömmtun hófst árið 1999. 

Okkar helsta markmið er að bjóða viðskiptavinum okkar persónulega og faglega þjónustu á lágu verði. 

Lyfjaver opnaði apótek árið 2002 í litlu rými við Suðurlandsbraut 22. Viðtökur á markaðnum voru strax fádæma góðar og streymdu viðskiptavinir í hið nýja apótek þó það væri á lítt áberandi stað og hvergi auglýst. Þó apótekið væri lítið upplifðu viðskiptavinir góða þjónustu og lægra verð en áður hafði þekkst á markaðnum. Apótekið sprengdi því fljótt utan af sér húsnæðið. Starfsmenn Lyfjavers hafa ávallt unnið í þeim anda að auglýsa ekki mikið en láta verkin tala. Tryggð viðskiptavina við fyrirtækið segir sína sögu.

Lyfjaver opnaði síðan eitt tæknivæddasta apótek Evrópu í janúar 2008 og er þetta eina apótekið á Íslandi sem notar nýjustu vélmennatækni við lagerhald og afgreiðslu lyfja. Notkun nýjustu tækni gerir okkur kleift að halda kostnaði í lágmarki og bjóða hagstætt lyfjaverð og eru gömlu góðu gildin að veita persónulega þjónustu á lágu verði sem fyrr okkar helsta leiðarljós.

Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur óslitið síðan 2005 verið langoftast með lægsta verð í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda.

Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyf á markaðnum á hverjum tíma.

Hjá Lyfjaveri starfa um 40 manns. Auk apóteksins á Suðurlandsbraut 22 rekur Lyfjaver Heilsuver sem staðsett er við hliðina á apótekinu og heildverslun sem selur lyf til aðila sem heimild hafa til að kaupa lyf í heildsölu.

Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslana.