Lyfjaver vinsælt sem aldrei fyrr

Lyfjaver vinsælt sem aldrei fyrr

4. maí 2013

Mikil aðsókn hefur verið í Lyfjaver undanfarnar vikur. Þessar miklu vinsældir má m.a. rekja til þess að fólk hefur haft áhyggjur af yfirvofandi breytingum á greiðsluþátttökukerfi lyfja sem nú hafa tekið gildi. Við erum þakklát þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem komið hafa í apótekið til okkar að undanförnu.

Eins og ávallt höfum við kappkostað að veita hraða og góða þjónustu og eiga lyf á lager en óhjákvæmilega hefur biðin undanfarna daga stundum verið lengri en venjulega. Við þökkum viðskiptavinum okkar mikinn skilning á þessu. Minnum líka á að lyfjaskömmtun er mjög góður kostur í hinu nýju greiðsluþátttökukerfi. Á síðunni okkar er líka að finna mikið af upplýsingum um nýja greiðsluþátttökukerfið.