Fáðu SMS þegar lyfjarúllan þín er tilbúin

Fáðu SMS þegar lyfjarúllan þín er tilbúin

24. maí 2013

Lyfjaver býður viðskiptavinum í lyfjaskömmtun að senda þeim SMS þegar lyfjarúllan er tilbúin. Mörgum þykir þægilegt að fá þessa áminningu og geta rennt við hjá okkur í apótekið og sótt rúlluna á sérmerktan afgreiðslubás fyrir lyfjaskömmtun. Undir liðnum Apótek hér á síðunni er hnappur þar sem hægt er að slá inn kennitölu og símanúmer til að virkja þessa þjónustu.