Samningur um lyfjafræðilega þjónustu

Samningur um lyfjafræðilega þjónustu

12. október 2018

Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur gert samning við Lyfjaver um lyfjafræðilega þjónustu fyrir stofnunina til næstu tveggja ára. Undanfari þessa samnings var verðkönnun þar sem Lyfjaver var með hagstæðasta tilboðið bæði út frá verði á lyfjum og þjónustu, auk þess að uppfylla best kröfur HSU um aukna skilvirkni og gæði í ferlum við innkaup og eftirlit. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU undirritaði í dag samning ásamt Hákoni Steinssyni framkvæmdastjóra Lyfjavers.  Samningurinn felur í sér alla umsjón á lyfjafræðilegri þjónustu og ábyrgð á lyfjamálum, lyfjapantanir fyrir allar deildir og starfstöðvar, vélskömmtun lyfja og þjónustu við lyfsölur sem HSU rekur á Vík og á Kirkjubæjarklaustri.  Með samningum er jafnframt stigið framfaraskref með innleiðingu á rafrænu pöntunarkerfi sem auðveldar birgðahald lyfja og gerir umsýslu með pöntunum og innkaupum lyfja skilvirkara og aðgengilegra.  Starfsmenn frá Lyfjaveri hafa þegar hafist handa við að undirbúa þjónustu við HSU og fögnum við góðu upphafi á samstarfi við fyrirtækið.