Lækkun á lyfjakostnaði vegna geðrofslyfja

Lækkun á lyfjakostnaði vegna geðrofslyfja

14. janúar 2013
Morgunblaðið birti á dögunum frétt um sparnað ríkisins vegna lækkunar á geðrofslyfinu Quetiapin Mylan. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að í júlí s.l. var Lyfjaver fyrsta og eina fyrirtækið til að lækka verð á Quetiapin-lyfjum með lækkun á samheitalyfinu Quetiapina Qualigen sem Lyfjaver dreifir. Með því var sjúklingum tryggður aðgangur að Quetiapin lyfjum með greiðsluþátttöku í júlí.